Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hversu langt eigum við að ganga?

Hversu langt eigum við íslendingar að ganga til að þóknast stóru þjóðunum með inngöngu í EB?

Þjóðverjar heimta að við hættum hvalveiðum, hollendingar og breta að við borgum Icesafe upp í botn.

Eru kostirnir ásættanlegir til að fórnað sé þessum hagsmunum? hvalveiðarnar eru jú ekki arðbærar í sjálfu sér en þær eru spurning  um þjóðarheiður og stolt sem þjóð með ákvörðunarrétt, og engin skyldi taka það  frá okkur nokkurn tíma! og Icesafe er spurning um afkomu allrar þjóðarinnar!! um það hvort lífskjör verði sæmileg eða léleg á næsta áratug eða svo!

Ef stjórnvöld ætla að semja þetta frá okkur er útséð um sjálftæði þessarar þjóðar, það er klárt,  innlimun í Evrópubandalagið verður til þess að innra skipulag hrynur og allur sjávarútvegur verður fluttur úr landi ásamt þvi að íslenskur landbúnaður mun deyja út með innfluttningi "allskonar" eins og Jón Gnarr myndi orða það!!

Það vita það allir sem eitthvað horfa á fréttir frá Evrópu, að EB er á brauðfótum, svo miklum að ekkert bakarí myndi sjá sóma sinn í að sjá því fyrir bakkelsi þetta árið!! Evru er spáð dauða á næstu árum svo að ég sé ekki hvers vegna við ættum að vera að sækja um inngöngu í  dauðvona dæmi ??

 


Greinilegt að menn hafa áhyggur af öryggi krónprinsessunar!

Hún gengur í það heilaga á morgun með sínum heittelskaða Daníel Westling.

Um tvöþúsund lögreglumenn munu ganga um göturnar ásamt sexþúsund hermönnum!! góðan daginn!

Svo er bara að vona að ekkrt illt komi fyrir og allt takist vel    








mbl.is Gríðarleg öryggisgæsla í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blúsbræður fá uppreisn æru Vatikansis

Þeir eru nú opinberlega viðurkendir fyrir traust og kristileg gildi og þar með komnir í hóp með myndum eins og "The Ten Commandments, Jesus of Nazareth, og jólahugvekjunnar, It's a Wonderful Life.

Þess má geta að þessi mynd þeirra Belushi og Akroyd er þrjátíu ára í ár.

Hipp Hipp

http://visir.is/blusbraedurnir-fa-blessun-katholikka/article/2010528477963

 


Bölvaði Beckham

En greyið Beckham á sáralittla sök á þeim hörmungum sem enska liðið er búið að koma sér í, hann er aðeins á bekknum og getur sig lítið hrært!!

Þetta er einfaldlega sök allra leikmanna liðsins sem og þjálfarans ítalska sem eru ekki að "fúnkera"


mbl.is Bölvaði Beckham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ungur drengur fórnar lífi sínu fyrir bróðir sinn!

Átta ára drengur lést við að bjarga sautjánmánaða bróður sínum úr brennandi húsi í Queens í New York. Hann var heima ásamt átjan mánaða gömlum bróður sínum og amma þeirra að passa þegar að eldur virðist hafa blossað upp með littlum fyrirvara, amman náðið Tyanthony, hinum átta ára gamla dreng út en þegar að hann áttaði sig á að bróðir hans er enn inni, hleypur hann inn til þess að reyna að bjarga bróðir sínum en lætur lífið í þeirri tilraun sinni ! Hetjulegt af þeim unga dreng.

http://visir.is/ungur-drengur-lest-thegar-hann-reyndi-ad-bjarga-brodur-sinum/article/201042848501


mbl.is Eins marks tap fyrir Brasilíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lélegt enskt lið !

Nú  eru um 7 mínútur eftir af leik Englands og Alsír og hugmyndarauðgi enska liðsins með afbrigðum lélegt, þeir virka staðir og stífir og eru ekki að skapa sér merkileg færi, þeir eiga ekki skilið að komast áfram!!

Messi segir að Fabregas vilji fara til Barcelona

Ef rétt er vill ég losna við kallinn, ekkert vit í að hafa menn sem ekki vilja spila fyrir liðið sitt og láta hafa eftir sér svona ummæli, þó svo að þau séu í váfréttalíki! En orðrómurinn er bara það sterkur að ég held að ekkert komi í veg fyrir að hann sé á leið frá liðinu. Við Arsenal menn hljótum að geta fengið staðgengil hans í sumar.
mbl.is Messi: Fabregas vill koma til Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákveðin vonbrigði!

Hanna Birna mun ekki bjóða sig fram sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins en það þýðir þó ekki að hún muni fara fram gegn Bjarna Ben í formannsslaginn!!

Ég vona það allavegaSmile


mbl.is Hanna Birna býður sig ekki fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein mistök eru of mikið fyrir þetta lið!!!

Capello segist sáttur við frammistöðu sinna manna í kvöld, þrátt fyrir að ná aðeins jöfnu gegn Bandaríkjamönnum í kvöld, Green átti að öllum öðrum ólöstuðum sök á þessu jafntefli er hann missti varðann bolta inn fyrir sig og sýndi enn einu sinni að hann er ekki markmaður sem á heima í þessu liði, ekki frekar en James, það er í raun engin almennilegur markmaður til í Englandi sem veldur þessari stöðu!!! Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir þetta lið.


mbl.is Capello: Ein mistök í góðum leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er maðurinn eiginlega að hugsa?

Hann er með sporðdreka í klofinu, hnífa í bowling kúlu sem hann kveikir í og kastar henni síðan á........... Jæja, sjáið þetta bara hér :


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband