Enn gera Man U jafntefli!

Í þriðja sinn í röð og það fimmta í deildinni, gera Man U menn jafntefli og nú gegn WBA á Old Trafford. En þeir eru þó enn  í öðru sæti ásamt Arsenal, Tottenham og Man C sem á leik til góða.

Er sá gamli að gefa eftir?


Svona í lokin, Little Suede Shoes

Já það er sá eini Toots Thielemans með David Sanborn á saxafón


Rosenberg Trio & Toots Thieleman spila hér Bolero Triste

Ég  mana góða aðdáendur góðrar gítar og munnhörpuunnenda til að hlusta  á þetta, þó svo að þetta sé ekki live !!


Peggy Lee og Toots Thielemans saman

Smá grín en gott!!


Og nú Quincy Jones & Toots Thielemans

Það er ekki á vondann að sækja þegar  að þessir tveir stilla saman strengi sína:


Meira af munnhörpusnillingum

Hér er Toots Thielemans sem er sennilega einn sá besti í þessu fagi með lagið Bye Bye Blackbird :


Námuni í Chile breytt í skemmtigarð !!

það er varla að blekið sé þornð í  ævintýri þeirra 33 námumanna í Chile, en  að peningamenn skundi af stað til að reyna að græða sem mest á mesta  björgunarafreki þessararar aldar.

Nú er talað um að þetta svæði verði að "skemmtigarði" þar sem að fólki gefst meðal annars kostur á að fara niður í hylki því er bjargaði mönnunum!!

Mér finnst þetta sjúkt, hvað finnst ykkur?


Frábær flutningur á munnhörpu hjá Stefáni Helgasyni

Spilandi á munnhörpu sjálfur er það alltaf gaman að heyra aðra snillinga spila á þetta hljóðfæri sem fáir spila á, ekki að ég telji sjálfan mig til þeirra snillinga, en það er önnur saga og annara að dæma sem þekkja, en hér er frábært hljóðdæmi greinilega margra ára gamalt, sjá má menn eins og Gulla Briem á trommum og Magga Kjartans á hljómborð ásamt Bjögga H og fleiru góðu fólki, takið eftir að í lokin skiptir Stefán yfir í blúsinn.


Allt Benitez að kenna! eða hvað?

Já, kennum öðrum um það sem úrskeiðis fór en ekki innsta kjarna, þar held ég að hundurinn liggi grafinn, meinið er og hefur verið það að gríðarleg óánægja hefur verið með eignaraðild þessara manna allt frá upphafi enda hafa þeir ekki verið ímynd hins ástsæla og trygga stuðningsmanns er alltaf kemur á völlinn á hvern leik, ónei, þeir eru sem betur fer fyrir fótboltann í heild og þá ekki síst Liverpool á leiðinni út og áreiðanlega verða þeir sterkari fyrir vikið, og geta nú einbeitt sér að því sem þeir eiga að gera best, að spila fótbolta!!!
mbl.is Hicks: Allt Benítez að kenna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landinn æstur í Björgvin og hans jólatónleika

Ekki skil ég þessi læti hvað tónleika  Björgins og gesta hans varðar, mér finnst þetta allt of miklir "iðnaðartónleikar" fyrir minn smekk um jólinn, finnst frekar að góðir tónleikar með góðum kirkjujólakór eða jafnvel tónleikar Hvítasunnusafnaðarins vera jólaleg innspírasjón inn í jólinn enda þessir stórtónleikar ekkert nema peningaplokk, þegar að hægt er að fara á mun jólalegri tónleika eins og ég sagði annars staðar fyrir littlar upphæðir.
mbl.is Landinn æstur í Björgvin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband