21.8.2009 | 21:19
Árni okkar Johnsen stal senunni á Alþingi í gær!
Er að jafna mig á flenskuskít sem herjar á heimsbyggðina og hef þar af leiðandi ekki mikið gagnlegt fyrir stafni, hvort sem er í vinnu eða á heimilinu, en þó heilsan sé slöpp er ekki endalaust hægt að liggja í bælinu og úldna, heldur reynir maður að staulast um íbúðina og telja mínútur og síðan klukkutíma, á milli þess sem ég hita mér heitt sítrónuvatn með miklu hunangi, eins og batinn komi eitthvað fyrr fyrir vikið. En að lokum sest maður við skjáinn og reynir að finna eitthvað til að horfa á og láta tímann líða, en það er bara ekkert á dagskrá á daginn sé maður ekki með fjölvarp svokallað og enda ég á að horfa á þingumræðu á Rúv, og verð ég að viðurkenna að mér fannst þessar umræður stóráhugaverðar, ekki síst fyrir þær sakir að í fyrsta skipti sá ég heildarmynd af því sem er að ske á þjóðþinginu í lengri heild en úr fréttum, og fékk allgóða mynd af flestum þeim þingmönnum sem nú eru á þingi.
Ég hlustaði á allar ræður þingmanna og er ekki ofsögum sagt að mér finnst þó nokkrir af þeim ekkert erindi eiga á alþingi okkar íslendinga! þeir voru sumir hverjir með afar daprar ræður og afskaplega slaka framsögu.
En ég verð að nefna þá sem mér fannst skara fram úr, og þá ekki endilega hvað varðar málefnalega hlið þess heldur líka skemmtanagildi þessa annars alvöruþrungna vinnustaðs.
Sigmundur Ernir var með skrautlega ræðu og gaf af sér skemmtilegt yfirbragð með miklum handahreyfingum og pati, og þrumaði annað slagið yfir salinn og fékk oft mikil ofaníköll yfir sig, en það var að öllum öðrum ólöstuðum Árni Johnsem sem stal senunni í gærkveldi með skemtilegri ræðu sem hægt var að hlægja að og jafnvel gráta yfir um leið!
Því miður tekst mér ekki að koma ræðunni á þennann link hér á síðunni af einhverjum ástæðum!
16.8.2009 | 02:41
Hverjum er ekki sama?
Má greyið ekki skemmta sér í friði, vísir.is er að verða eins og Sun í Bretlandi, því miður!!
http://visir.is/article/20090815/IDROTTIR0102/374847450
16.8.2009 | 01:46
James Taylor er þægilegur fýr !
Hér er hann með lagið fire and rain
16.8.2009 | 00:41
Hver man ekki eftir þessu úr kanaútvarpinu í denn ?
Seals & Crofts og diamond Girl
15.8.2009 | 23:05
Góð lending? frekar magalending að mínu viti
![]() |
Góð lending fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 22:39
Létt burst á Everton í startið

![]() |
Arsenal rótburstaði Everton á Goodison Park |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 22:08
Úff, þetta er ekkert venjulegt hrun!
Það er aldrei gaman að lesa eða heyra um miður skemtileg afdrif landans á erlendri grund, það að lesa um hrun banka okkar í erlendum prentmiðlum er svo ömurlegt að ekki er fingri á festandi!!
![]() |
Telegraph: Ekkert venjulegt hrun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 19:57
Quislingar okkar tíma!
14.8.2009 | 22:43
Hér er hann aftur með "Starman"
Eitt af hanns betri lögum
það er með ólíkindum hve linir og jafnvel sofandi okkar forystumenn eru í máli Icesave, að sætta sig við eitthvert málamyndasamkomulag sem í felst að "breyta" orðalagi samningsins sem í raun alls ekki á að greiða, er ekki ásættanlegt! Mér liggur við að segja að okkar stjórnarliðar séu ekkert annað en nútímaútgáfur af hinum norska Vidkun Quisling sem sveik sína þjóð í hendur nasista í seinni heimstyrjöldinni, þeir eru í þessa mund að skrifa hrikalega sorgarsögu í íslenska stjórnmálasögu sem þýðir að okkar ástkæra þjóð mun ekki bera sitt barr í óratíma!!