Við verðum að reka Venger, og fá ferskt blóð í fallbyssuna!!!

helst á morgun!!!
mbl.is Wenger: Getum sjálfum okkur um kennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki sammála. Tel enga aðra stjóra á lausu sem hægt væri að geta treyst að næðu í titla frekar en Wenger? Hvaða stjórar hafa landað titlum í ensku deildinni? Það eru nú ekki mörg lið sem hafa unnið ensku deildina síðustu fimmtán árin. Líklega eru þau bara þrjú eða fjögur, og Arsenal eitt þeirra. Chelsea og Man Utd. hafa

Það hefði verið sterkt að sjá sterkari leikmann með Fabregas á miðjunni, en mig grunar að Arsenal liðið hafi ekki úr eins miklum peningum að moða og eigendur hafa gefið í skyn.

Forráðamenn Liverpool hafa mikið hamrað á að margir lykilmenn þeirra hafi verið í meiðslum. Hvað segja menn um að eftirfarandi hópur sé í meiðslum hjá Arsenal: Van Persie, Gibbs, Walcott, Denilson, Traore, Wilshere, Diaby, Bendtner, Clichy og Djourou. Alls eru í dag 10 leikmenn á sjúkralistanum. Að auki eru leikmenn á borð við Eduardo og  Rosicky að stíga upp úr mjög erfiðum meiðslum. Voru frá allt síðasta tímabil og eru fyrst að komast í form. Meiðsli hafa komið í veg fyrir að Arsenal liðið hafi tekið titla síðustu 2-3 árin. Van persie, Clichy og Denilson eru byrjunarliðsmenn. Þeir sem koma í staðin fyrir þá eru líka meiddir. Það eru þrjár stöður mannaðar með þriðja valkost. Slæmt mál.

Breiddin er kannski ekki nægileg. Skoðum hvað liðin sem Arsenal eru að keppa við hafa verið að eyða í leikmenn síðustu tímabilin 2004-2009

LIVERPOOL: 122 MILLJÓN PUND Í MÍNUS

MAN UTD.:  30 MILLJÓN PUND Í MÍNUS (SELDU RONALDO Á 80 MILLJÓN PUND, ANNARS VÆRI TALAN HÆRRI)

CHELSEA: 190 MILLJÓN  PUND Í MÍNUS´

ARSENAL 30 MILLJÓN PUND Í PLÚS

Allir sjá að erfitt er að keppa við lið sem eru búin að eyða allt að 10 sinnum meira í leikmenn en Arsenal. Að auki eru launagreiðslur til leikmanna hjá hinum liðunum mun hærri en hjá Arsenal. Ef Wenger hefði t.d. fengið 80 milljón pund til að kaupa Ronaldo í sumar, aðrar 80 milljón punda til að kaupa Messi og kannski 50 í viðbót fyrir góðan miðjumann, þá er næsta víst að liðið væri betur sett. Meðan Arsenal er að borga niður skuldir af nýjum leikvangi þarf að skera niður í leikmannakaupum og launagreiðslum. það mun taka nokkur ár. Síðan verður liðið með stærsta leikvanginn í stærstu borg Englands. Það gefur þeim mikið forskot í að ná í tekjur.

Held að það detti varla nokkrum einasta manni í hug að skipta um stjóra hjá Arsenal. Ef svo ólíklega vildi til að það yrði gert, þá er nokkuð víst að hvert einasta stórlið í evrópu myndi gera hvað sem er til að næla í þennan snjalla náunga sem Wenger er.

joi (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 00:25

2 identicon

HA Gummi?!

Á allt í einu að fara reka töframanninn... hvaða vitleysa og óþolinmæði er þetta ;)

Gestur (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 10:26

3 identicon

Voðalega finnst mér mjög margir Arsenal menn vera með rosalega skiptar skoðanir um Wenger. Arsenal vinnur Everton 6-1, Wenger er legend sem má aldrei fara. Arsenal vinnur Spurs 3-0, Wenger er legend. Arsenal tapar einum leik gegn Sunderland, rekum Wenger. Við þurfum að sýna Wenger þolinmæði. Ég hef ekki trú á því að nokkur annar maður myndi sinna þessu liði eins vel og hann gerir. Í raun finnst mér árangur hans með eins vængbrotið lið og liðið var, vera alveg ótrúlegur. :)

Eyþór E. (IP-tala skráð) 22.11.2009 kl. 21:35

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Kannski er það svo, en þið gleymið því að þetta er risaklúbbur með miklar væntingar, og þær eru ekki að skila sér í titlum, hvernig stendur á því að meiðsli eru alltaf að há  okkar lið meira en okkar andstæðinga?? eru þjálfaramál eða stjórn Wengers þar um að kenna? eða hver er skýringin????

Guðmundur Júlíusson, 27.11.2009 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband