Skora á þingmenn og efnaða að þeir gefi ákveðna upphæð til þeirra er minna mega sín

Nú þegar að öll spjót standa á þingmönum, að ekki sé talað um efnamikla umsvifamenn í þjóðfélaginu, yrði það ekki slæmur leikur hjá þessu fólki, í ljósi umræðu undanfarinna daga að þeir sýndu samhug og gæfu "tíund" (þetta mætti vera minna eða meira) til fólks er virkilega þarf á peningum að halda.

Ég segi fyrir mig, að ætti ég pening aflögu gæfi ég þá með glöðu geði, ekki síst ættu þingmenn sem virkilega taka ástandið í þjóðfélaginu alvarlega að sýna lit með þvi að gefa til minnimáttar! 

Ég trúi ekki öðru en að þeir sýni nú lit með því að gera eitthvað í málinu, t.d, gæti hver þeirra sem aflögu er fær tekið að sér að styrkja ákveðin einstakling, þeir gætu haft  samráð um það í samstarfi við félagsmálayfirvöld t.d. ?

En satt að segja á ég alls ekki von á því að þetta gerist, en kraftaverk gerast en, ekki satt ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

10 þúsund frá mér og nokkur egg líka.

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 20:09

2 identicon

Björn minn, einhvern veginn grunaði mig að þú yrðir fyrstur til að svara þessu kalli enda maður littla mannsins, tíu þúsund kall er hér með skráður á þig en eggin verða að fara sérstaka leið sem ég á eftir að útfæra, þú ert vonandi maður til að sjá á eftir þessum eggjum?

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 1.10.2010 kl. 20:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband