Götusmiðjan íhugar málaferli

Enn eitt dæmið um ríkisforsjá og offarir opinbera kerfisins og íhlutun á því sem þeir hafa ekki hundsvit á, þessari forsjárhyggjupólítík verður að linna strax!!
mbl.is Götusmiðjan íhugar málaferli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmm ertu þá sáttur við það að ríkið haldi áfram að reka heimili þar sem börnunum er hótað líkamsmeiðingum af meðferðaraðilanum?

Elín (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:17

2 identicon

Hver er það sem segir að sú sé raunin? Tekur þú orð "skrifræðismanna" ríkisins fram yfir orð Guðmundar forstöðumanns ? bara af því? Er búið að sanna að líkamsmeiðingar hafi átt sér stað? Bíðum með alla dóma þangað til að hið sanna kemur í ljós, ef rétt reynist er ég fyrstur til að viðurkenna það!!!

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:48

3 identicon

HG (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:51

4 identicon

Skammastu þín Elín. Þetta eru óstaðfestar Gróusagnir.

Fyrir utan það að það er ekki ríkið sem "rekur Gøtusmiðjuna" Heldur er það starfsemi hugumstórra einstaklinga sem eru í þessu vegna þess að ríkið hefur vanrækt skildur sínar gagnvart þessum skjólstæðingum. Og ef þessara einstaklinga hefði ekki notið við í gegn um árin, þá væri þessi málaflokkur algjørlega úti í dag.

Nú á þessum síðustu og verstu tímum er þørfin aldrei meiri, fyrir þá þjónustu sem þarna hefur verið framreidd.

Og skømm að því að svelta hana. Hana þarf að stórefla.

Og ég bara spyr? Hvert ætlar "Barnaverndarstofnun" að senda þessa krakka núna? Hún hefur enga úrkosti.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 00:57

5 Smámynd: Magnfreð Ingi Ottesen

Væri ekki nær að senda annan mann í staðin fyrir mumma á meðan staðin fyrir að LOKA götusmiðjuni?

Er ekki kominn tími að það komi nýr maður í stað Braga sem er búinn að klúðra allt of mörgum málum?

Magnfreð Ingi Ottesen, 26.6.2010 kl. 13:52

6 Smámynd: Elísabet Gísladóttir

Ég hef það á tilfinnigunni að þarna séu nornaveiðar í gangi. Mummi er þekktur fyrir margt fyrst og fremst hugsjón og frumkvöðlastarf hann nýtur virðingar krakkanna sem líta á hann sem bjargvætt. En hann er EKKI þekktur fyrir líkamsárásir hvorki á starfsfólk né nema Götusmiðjunnar. Í starfinu á Götusmiðjunni krefst hann mikils aga bæði af starfsfólki og nemum það er það sem hefur gert það að verkum að nú eru úti í þjóðfélaginu mörg hundruð flott ungmenni, sem nýttu þjónustu Götusmiðjunnar náðu stjórn á lífi sínu og eru nú virkir og nýtir þjóðfélagsþegnar. Megum við missa svona starf ?

Elísabet Gísladóttir, 26.6.2010 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband