Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2010

Hvert verður svarið frá þeim??

Get ekki beðið eftir að heyra hvert þetta svar þeirra er, tel þó líklegt að það verði neikvætt, ef það hefði verið okkur hliðhollt biðu menn ekk með að segja frá því!!
mbl.is Svar komið vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig skilgreinir maður rusl?

Víst má segja að Bond myndirnar séu ekki þar allra bestu hvað varðar efnistöku, en þær eru og verða alltaf afþreyingamyndir fyrir fólk sem vill einfallt og áreynslulaust áhorfsefni með spennu og einföldum þræði, þær eru einfaldlega hluti af tilverunni og munu varðveitast sem slíkar í heimi kvikmyndanna.
mbl.is Bond-myndirnar „rusl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Arsenal komnir í 1-0

Arsenal dominerar leikinn og eru komnir yfir eftir 28 mín leik, Bendtner með markið.

Detti mér allar dauðar!!!!

Þetta er með ólíkindum, svipað og að það snjóaði á Acapulco!!!

Reyndar var ég búinn að heyra af þessu á blogginu í kvöld frá Danmörku.

 


mbl.is Sjaldgæfur jarðskjálfti í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilboð sem ekki er hægt að hafna !!!!!! hahaha

Hvað eru menn að gera með svona bull yfirlýsingum? ekki fjarri lagi að þetta minni á Guðföðurinn sáluga!! Það er greinilegt að þetta er látið leka út til að skapa fréttaefni og reyna að leiða  hugann að öðrum vandamálum!!! enda ( Reuters hefur þetta eftir hollenskum embættismanni sem vill ekki láta nafns síns getið) úhhhhhhh

Dráttur og hjartastuð, allt í einum pakka !!

það er alkunna að karlmenn hafa lennt í hjartastoppi við samfarir, sér í lagi við óvenjulegar aðstæður eins og heimsókn til vændiskvenna, en nú getur verið að lífslíkur þessa hóps lengist þar sem að í Sviss hafa hóruhús tekið höndum saman um að kenna "vistmönnum" á hjartastuðtæki sem staðsett skal á öllum betri húsum bæjarins auk þess sem heilbrigðisyfirvöld á svæðinu eru sögð styðja framtakið,  og ekki síst vegna þess að það er auðveldlega hægt að nota þau við þessar lífshættulegu aðstæður ef svo má að orði komast.


Frábær flutningur á opnunarhátíð ÓL

Horfði á endursýningu á setningararathöfn 21.vetrarólympíuleikana í Vancouver í dag og þótti mér það með afbrigðum flott! þó þeir hafi fallið í skugga af banaslysi Georgíumannsins Nodar Kumaritashvili  sem lést við æfingar á bobsleða sínum.

En aftur að setningarhátíðínni, margir létu til sín taka á tónlistarsviðinu þó engin hafi verið betri en K.D Lang sem flutti lag Leonards Cohen Haleluja með bravör :)

Hér er sama útfærsla og á leikunum í dag, þar sem þetta er enn ekki aðgengilegt á netinu.


Stigatafla ensku úrvalsdeildarinnar gæti breyst ef Portsmouth yrði vikið úr deildinni

Miklar breytingar yrðu a deildinni við brottrekstur Portsmouth, stig unnin gegn Portsmouth yrðu dæmd af liðunum og mismikið, liðið tapaði báðum leikjunum gegn Arsenal og Man U en á eftir að spila seinni umferð við Chelsea, þannig að þeir tapa aðeins þremur stigum í stað sex hjá hinum fyrstnefndu.

"Verði Portsmouth rekið úr deildinni yrði ný stigatafla þannig að Chelsea væri með 55 stig en Manchester United 51 og ætti leik til góða. Munurinn á Arsenal og Liverpool sem eru í 3. og 4. sæti yfir samkvæmt nýrri töflu aðeins 2 stig í stað 8 núna " skv frétt á Vísi.is

http://visir.is/article/20100212/IDROTTIR0102/370952547


Avatar, smá sýnishorn!


Á þetta ekki ágætlega við, How Long

Hlustið á textann og reynið að samsvara hann yfir á það sem er að gerast hér á landi!!!

Paul Carrack og eða Ace, með How Long !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband