Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Jólahlaðborð á Silfri

Það hafa allir, eða skal ég segja flestir, farið á jólahlaðborð á sinni lífstíð og sennilega jafnmargir orðið fyrir vonbrigðum með matinn sem þar var á boðstólum borin Errm Ekki fer ég varhlutan af þeirri historíu enda orðið fyrir miklum vonbrigðum um ævina hvað hlaðborð varðar, en ég get sagt ykkur strax að ég átti frábært kvöld með mínu fólki um helgina á Hótel Borg um mánaðarmótin síðustu, allt viðmót var til fyrirmyndar sem  ásamt skreytingum eða "outlooki" staðarins til að fá viðskiptavini til að njóta sín gerði þessa kvöldstund ógleymanlega, matur var í sérflokki og  voru allirf sammála því.

Ég sendi starfsfólki Silfurs sals okkar bestu kveðju Smile


Minna atvinnuleysi mæilist í USA nú en áður

Barrack Obama segir að atvinnuleysi sé þar í landi minna en áður! aðeins 11 þúsund manns var  sagt upp störfum sl. mánuð sem er mun lægri tala en spáð var, síðast misstu jafnmargir vinnuna árið 2007 í desember!!!

Auðvitað sagði Obama að fréttirnar væru uppörvandi, þetta er að mínu mati aðeins lognið á undan storminum!!


mbl.is Obama: Uppörvandi fréttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband